torfkofinn.is

  • Plöntumyndir
  • Klippitímabilið mikla 2024

    Klippitímabilið mikla 2024

    Nú er runninn upp sá árstími þar sem garðyrkjukonur eins og ég eru annaðhvort að rífa sig upp úr sófanum eftir að hafa klárað Netflix á þremur vikum, lenda á keflavíkurflugvelli frá einhverju týbísku sólstrandalandi eða rétt halda augunum opnum eftir áramótadjammið síðustu helgi. En allar eigum við það þó sameiginlegt að klippitímabilið er rétt handan við hornið.

    Besti tíminn til að klippa tré og runna er nefnilega á veturna, eða svona ca jan-maí. Ein af ástæðunum fyrir því er að það er svo auðvelt að taka heilu trén og runnana í gegn með krónuklippingum þegar laufin eru ekki til staðar, því þá er svo auðvelt að sjá heildar greinabygginguna og kafa inn í tréð og taka það sem nauðsynlegt er. Einnig er þetta flottur tími fyrir gróðurinn þar sem þau eru bara krúttlega sofandi og verða varla vör við neitt, og þau geta því byrjað blómgunartímann í einhverri sprengju um vorið og laus við allar óþarfa greinar eða rótarskot sem voru að taka frá þeim orku eða skemma fyrir öðrum flottum greinum.
    En þrátt fyrir alla þessa garðyrkjuspeki þá er líklegast að raunverulega ástæðan fyrir því að veturinn sé besti tíminn til að klippa sú að garðyrkjukonur eins og ég hafa engan tíma fyrir svona lagað á sumrin þar sem önnur mjög svo mikilvæg verkefni kalla á okkur þá.

    Að því sögðu, þá hvet ég ykkur öll sem sjá þörf fyrir að láta klippa garðinn sinn til að hafa samband núna strax, við megum nefnilega engan tíma missa kæru íbúar Fjarðabyggðar.

    Þú getur pantað vetrarklippingu hér og ég svara eins fljótt og ég get:
    Panta þjónustu

    Kristín Snorradóttir, skrúðgarðyrkjumeistari
    Torfkofinn ehf.
    torfkofinn@gmail.com
    s. 768-9485

    rita

    January 5, 2024
    Uncategorized
  • Gleðileg jól með hækkandi sól

    Gleðileg jól með hækkandi sól

    Torfkofinn óskar viðskiptavinum gleðilegra jóla 🌲
    Í leiðinni langar mig að færa ykkur nokkrar fréttir.
    En síðastliðið ár er ég búin að vera í fæðingarorlofi. Ég lokaði vefversluninni í sumar þar sem ég og dóttir mín vorum að ferðast um landið og ég hafði ekki tök á að sinna pöntunum í gegnum síðuna.
    Á ferðalaginu okkar enduðum við á Reyðarfirði í heimsókn hjá foreldrum mínum, og eftir smá stopp þar þá ákvað ég að við myndum ekki fara aftur suður, svo við erum því fluttar á Reyðarfjörð.
    Vefverslunin verður því miður ekki opnuð aftur á næstunni, en það er alltaf hægt að panta myndir með því að hafa samband hér í gegnum facebook skilaboð. Hægt er að sjá úrvalið sem er í boði á www.torfkofinn.is, einnig mun ég setja inn þær myndir sem er hægt að fá á facebook á næstu dögum.
    Á nýju ári mun ég svo bjóða uppá alhliða garðyrkjuþjónustu hér í Fjarðabyggð, ásamt fleiru spennandi sem ég mun segja frá seinna.

    Jólakveðja,
    Kristín Snorradóttir
    Skrúðgarðyrkjumeistari
    Torfkofinn ehf.

    rita

    January 5, 2024
    Uncategorized

©2023 All rights reserved.

  • Facebook